Einar Hlöðver Sigurðsson

Fæddur og uppalinn Eyjamaður en það er einnig spúsa mín til tæplega átta ára, Rakel Rut Stefánsdóttir. Fluttum til Danmerkur í lok september 2005 og höfum verið á danskri grundu í akkúrat 13 mánuði (skrifað í byrjun febrúar) en nokkrar langar Íslandsferðir hafa spilað inní. Við fluttum fyrst til Köben en færðum okkur um set til Århus í september s.l. Við búum á Viborgvej 33 í Århus centrum. Ég er á öðru ári í stjórnmálafræði í Háskóla Íslands og er nú utanskóla. Vinn einnig sem "vikar" í gegnum Proffice hjá flutningafyrirtækinu Maersk Logistics tvo til þrjá daga í viku. Rakel stundar nám í fatahönnunarskólanum Teko sem er staðsettur í Herning. Íþróttir, stjórnmál, fréttir, fjölmiðlar og skrif hverskonar eiga hug minn allan og verður það væntanlega helsta umræðuefnið á þessari síðu. Meira síðar.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Einar Hlöðver Sigurðsson

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband